VIRKJAÐU STOFNFRUMURNAR
Hvernig virkar X39?
X39 byggir á ört vaxandi vísindagrein sem kallast photheraphy (PhotoBioModulation). Nú þegar eru þúsundir ritrýndra rannsókna á PhotoBioModulation.
​
Það er áhugavert minnast Niels sem er eini læknirinn á Norðurlöndum sem hefur tekið á móti Nóbelsverðlaunum. Hann var íslensk ættaður og hét Niels Finsen hann fékk Nóbelsverðlaunin 1903 vegna rannsókna á phototheraphy.
​
X39 örvar líkamann með phototheraphy til að framleiða meira magn af koparpeptíðið, sjá nánar rannsóknir GHK-Cu.
​
Framleiðsla líkamans minnkar verulega á þessu lífsnauðsynlega peptíði með aldrinum. Rannsóknir sýna að X39 getur aukið framleiðslu líkamans á koparpeptíð um tugi prósenta strax á fyrstu viku.
X39 byggir á tuttugu ára þróun og klínískum rannsóknum. Á þessari vegferð hefur LifeWave skráð um 130 einkaleyfi.
Myndbandið hér að neðan lýsir ljóseindameðferðinni (phototheraphy/photobiomodulation) ágætlega.
Ekkert efni fer inn í líkamanum úr plástrinum!
X39 er lítill plástur sem inniheldur m.a. amínósýrur sem hafa farið í gegnum ákveðið framleiðsluferli til að mynda kristalla úr efninu. Þannig hefur X39 ákveðna eigintíðni sem endurvarpar ljóseindum á ákveðinni bylgjulengd (tíðni) sem líkaminn geislar sjálfur frá sér. Það er eigintíðnin (resonance) sem virkjar plásturinn þegar hann kemur inn í orkusvið líkamans.
Ferlið veldur lífeðlisfræðilegum viðbrögðum i líkamanum. Þetta er samskonar lífeðlisfræðilegt ferli sem þú þekkir þegar ákveðið tíðnisvið sólarljóss örvar líkamann til að framleiða D vítamín eða melanín.
Svona eru tíðnir ljóss á innrauða tíðnisviðinu sem hægt er að virkja til þess að örva líkamann til að auka framleiðsluna á ýmsum lífsnauðsynlegum efnum, eitt af þeim er koparpeptíð (GHK-Cu). Hér má sjá áhugaverða samantekt á kostum og ávinningum koparpeptið og rannsóknir er hægt að skoða hér.
Koparpeptíð (GHK-Cu) m.a virkjar og örvar stofnfrumur. Stofnfrumur eru lykilfrumur og byggingareiningar líkamans, hlutverk þeirra er að skapa, gera við og endurnýja. Þær finnast um allan líkamann í blóði, vefjum og líffærum. Stofnfrumurnar endurnýja deyjandi frumur, skemmda vefi og líffæri. Það er lykilatriði að viðhalda virkni stofnfruma til þess að halda í æskuljómann og lífsþróttinn lengur.
Koparpeptíð (GHK-Cu) gerir margt annað áhugavert en að virkja stofnfrumur, hér eru nokkur atriði:
- Kemur 3000 - 4000 genum aftur í yngra ástand
- Bætir og lagar DNA
- Dregur úr verkjum
- Dregur úr kvíða
- Dregur úr öldrunaráhrifum
- Stuðlar að endurnýjun líffæra
- Bætir blóðflæði í vefjum
- Eykur kollagen framleiðslu
- Stynnir og þykkir húðina
- Bætir hár og styrkir neglur
- Vinnur gegn bólgum og sindurefnum
Notkunarleiðbeiningar
Aðeins einn X39 plástur er notaður í einu.
Það er í raun sama hvar þú staðsetur X39 plásturinn á líkamanum. Sumir setja hann beint á verk, en aldrei setja hann beint ofan á sár.
Flestir nota X39 samkvæmt notkunarleiðbeiningum sem fylgja með. Þessir tveir punktar sem þú sérð á myndinni eru þær staðsetningar sem hafa verið notaðir við rannsóknir á X39.
Á neðsta hálsliðinn (kúluna aftan á hálsinum) eða þrjá fingur fyrir neðan nafla. 12 tíma á sólarhring, annað hvort á daginn eða á nóttunni.
​
Dýpri vísindaskilningur: Hvernig líkami "ljóssins" virkar með Lifewave tækninni
Líkaminn er meira en efnið sem myndar hold og blóð. Hér útskýrir David Schmidt hvernig LifeWave tæknin virkar.
Meira um stofnfrumuhvatann X39™
David Scmidt útskýrir virkni X39™.